Fréttahornið

07.05.2012  Vildarvinir Siglufjarðar veita setrinu styrk
Í síðustu viku var forstöðumaður setursins boðaður á aðalfund Vildarvina Siglufjarðar, sem haldin var í Reykjavík, til að taka við styrk frá þessum félagsskap. Vildarvinir Siglufjarðar er um fjögurra ára gamalt félag og hefur á undaförnum árum styrkt ýmis góð málefni sem tengjast Siglufirði. Styrkurinn nam 100.000 krónum og kemur hann sér mjög vel núna þegar styttist í sumarvetríðina. Fostöðumaður flutti síðan erindi fyrir fundarmenn þar sem hann fór yfir söguna á bak við setrið, sagði frá uppbyggingunni og hvernig starfseminni væri háttað. Kærar þakkir til Vildarvina fyrir stuðninginn.
 
06.05.2012  Eyfirski safnadagurinn
Í gær var hinn árlegi Eyfirski safnadagur og var Ljóðasetrið með í þeim degi í fyrsta sinn. Öll söfn á svæðinu voru opin og þema dagsins var hljóð. Þó nokkrir lögðu leið sína í setrið og hlýddu á upplestur og tónlist.
 
Gestir hlýða á ljúfa tóna og skoða sig um

01.05.2012  Nemendur úr Menntaskólanum á Tröllaskaga í heimsókn
Á dögunum litu nokkrir nemendur úr MTR í heimsókn í Ljóðasetrið ásamt kennara sínum. Þetta voru nemendur í íslenskuáfanga þar sem verið er að fjalla um strauma og stefnur í íslenskum bókmenntum og því alveg tilvalið að líta inn á setrið. Því þar er einmitt hægt að sjá yfirlit yfir helstu strauma og stefnur í íslenskum kveðskap allt frá landnámsöld til vorra tíma. Svo skoðuðu nemendur sig um og forstöðumaður lýsti því sem fyrir augu bar. Var þetta ánægjuleg heimsókn.
  
07.04.2012  Umfjöllun um Ljóðasetrið í Sunnudagsmogganum
Í Sunnudagsmogganum, sem kom út í dag, er viðamikil umfjöllun um Ljóðasetrið og viðtal við forstöðumann þess. Þar er farið yfir aðdragandann að opnuninni og helstu þætti starfseminnar auk þess sem birtar eru nokkrar myndir úr setrinu. Það var Skapti Hallgrímsson, blaðamaður Morgunblaðsins á Akureyri, sem heimsótti setrið á dögunum og spjallaði við Þórarinn forstöðumann.

04.04.2012  Opið á Ljóðasetrinu um páskana
Opið hefur verið á setrinu síðustu tvo daga og nokkrir gestir hafa rekið inn nefið. Næstu daga, fimmtudag - sunnudags, verður opið frá kl. 13.00 - 17.00 og verður boðið upp á lifandi viðburði kl. 15.00 alla dagana. Hvetjum við sem flesta til að líta inn, skoða sig um og upplifa afslappaða og notalega stemningu.

04.04.2012  Passíusálmarnir á sérsýningu
Í tilefni páskahátíðarinnar eru þær útgáfur sem setrið á af Passíusálmum Hallgríms Péturssonar til sýnis á setrinu auk annarra verka sem tengjast Hallgrími. Á föstudaginn langa kl. 15.00 verður fjallað um og lesið úr þessu mikla verki Hallgríms.

19.03.2012  Vel sótt Vinjettuhátíð
Vinjettuhátíðin sem fór fram í Ljóðasetrinu í gær var mjög vel sótt, en tæplega 40 manns nutu þess sem var í boði þessa kvöldstund. Ármann Kr. Reynisson, sem kynnti þetta form á Íslandi og hefur gefið út fjölda vinjettubóka undanfarin ár, stjórnaði dagskránni og sagði frá því hvernig þessi hugmynd um að gefa út bók með vinjettum hefur hlaðið utan á sig. Frá því fyrsta bókin kom út hafa komið út 10 til viðbótar auk ýmissa afleggjara frá þeim t.d. útgáfa með völdum vinjettum á 8 tungumálum. Höfundurinn hefur farið víða um land til að halda hátíðir sem þessa og var Siglufjörður 31 bæjarfélagið sem hann heldur slíka hátíð í. Ármann las sjálfur úr bókum sínum og fékk auk þess nemendur úr Menntaskólanum á Tröllaskaga til að lesa með sér. Á milli lestra var boðið upp á tónlistaratriði: Sturlaugur Kristjánsson lék á nikkuna, Þórarinn Hannesson lék og söng frumsamið lag og félagar úr kvæðamannafélaginu Rímu fluttu nokkur íslensk þjóðlög. Var þetta hin ánægjulegasta kvöldstund. Nokkrar myndir frá hátíðinni má sjá í myndaalbúminu Starfsemi hér til hliðar.

Hluti áhorfenda

  
Ármann Kr. Reynisson með bækur sínar (mynd af sksiglo.is)

04.03.2012  Vinjettuhátíð í setrinu þann 18. mars
Sunnudaginn 18. mars nk. mun Ármann Kr. Reynisson verða með Vinjettuhátíð í Ljóðasetrinu. Þar mun Ármann lesa úr verkum sínum ásamt nokkrum nemendum Menntaskólans á Tröllaskaga, kvæðafólk úr Rímu mun kveða íslensk þjóðlög og Sturlaugur Kristjánsson og Þórarinn Hannesson leika tónlist á milli atriða. Svona vinjettudagskrár hafa verið haldnar vítt og breytt um landið undanfarin ár og verið vel sóttar. 
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis, kaffi og meðlæti verður til sölu í hléi. 

10.02.2012  Kvæðafólk kom saman til að kveða í Ljóðasetrinu
Frá því í haust hefur áhugafólk um íslensk þjóðlög komið saman reglulega í Þjóðlagasetrinu til að kveða. Á dögunum var óskað eftir því að þessi hópur fengi að heimsækja Ljóðasetrið og kveða þar og var að sjálfsögðu orðið við þeirri bón. Í gærkvöldi mætti hópurinn í setrið og kvað af hjartans list ýmis þjóðlög við vísur hinna ýmsu skálda og var glatt á hjalla. Fyrir dyrum stendur að halda hér á Siglufirði kvæðamannamót, stefnt er að því að það verði 3. mars, en þá munu kvæðamenn víða að af landinu koma hingað og kveða saman auk þess að fræðast meira um íslensku þjóðlögin. Ljóðasetrið mun á einhvern hátt koma að þessari hátíð.

10.02.2012  Styrkur frá Menningarráði Eyþings
Á dögunum fékk Ljóðasetrið styrk frá Menningarráði Eyþings vegna hinna lifandi viðburða sem verða munu í setrinu næsta sumar.  Boðið verður upp á lifandi viðburði kl. 16.00 alla opnunardaga næsta sumar og er það von aðstandenda setursins að fólk muni nýta sér það.

06.01.2012  Ljóðasetrið í Heima er bezt
Í 12. tölublaði tímaritsins Heima er bezt árið 2011, sem kom út milli jóla og nýárs, er sagt frá heimsókn blaðamanns á Ljóðasetrið og spjallað er við forstöðumann í 6 síðna viðtali þar sem eitt og annað ber á góma. Megináhersla er þó lögð á Ljóðasetrið og starfsemina þar sem blaðamaður var mjög hrifin af.

05.01.2012  Annáll ársins 2011
Gleðilegt ár kæru ljóðavinir og takk fyrir það gamla. Nú er tími til að gera upp fyrsta starfsárið hjá Ljóðasetrinu, sem var þó reyndar ekki nema hálft því setrið opnaði ekki fyrr en í júlí. 

Annáll 2011
Það var þann 8. júlí sem sú langþráða stund rann upp að Ljóðasetur Íslands var vígt á Siglufirði eftir nokkurra ára undirbúning. Sérstakir gestir við opnunina voru frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og Þórarinn Eldjárn ljóðskáld og rithöfundur. Opnunarhátíðin var mjög vel sótt og stóðu gestir jafnt innandyra sem utan, voru þeir um 150 talsins. Frú Vigdís opnaði setrið formlega, Þórarinn Eldjárn flutti ávarp og eigin ljóð, frumflutt voru ljóð eftir Matthías Johannessen og Sigurbjörgu Þrastardóttur, kvæðamannafélagið Fjallahnjúkar flutti íslensk þjóðlög, Páll Helgason flutti ávarp og frumort ljóð auk þess sem forstöðumaður setursins, Þórarinn Hannesson, sagði frá uppbyggingunni og fyrirhugaðri starfsemi. Gerð var grein fyrir hinni veglegu bókagjöf sem Arnold Bjarnason færði setrinu og forstöðumaður tók við styrkjum vegna opnunarinnar frá Siglfirðingafélaginu og Fjallabyggð.

Setrið var opið kl. 14-18 alla daga frá 8. júlí - 15. ágúst og voru gestir þessar vikur hvorki fleiri né færri en 1.100. Alla daga kl. 16.00 var boðið upp á lifandi viðburði, þ.e. þegar einhverjir voru til að njóta, og urðu þeir um 30 talsins. Þessir viðburðir voru af ýmsum toga: skáld og rithöfundar lásu úr verkum sínum m.a. Þórarinn Eldjárn, Ari Trausti Guðmundsson, Þórarinn Hannesson, Ásdís Olsen, Páll Helgason, Örlygur Kristfinnsson o.fl., forstöðumaður las upp úr völdum ljóðabókum og fjallaði um nokkur skáld, tónlistarmenn litu í heimsókn og fluttu sitt efni, boðið var upp á barnadagskrár o.fl. Skapaðist oft á tíðum afskaplega góð stemning á þessum viðburðum og gestir voru frá 3 og upp í 30.

Örlygur Kristfinnsson les fyrir gesti úr bók sinni Svipmyndir úr síldarbæ

Almennt voru gestir mjög ánægðir með það sem fyrir augu og eyru bar á setrinu og varð andrúmsloftið strax mjög gott og afslappað. Gestir gáfu sér flestir góðan tíma til að skoða sig um og margir áttu orðastað við forstöðumann og aðra gesti um íslenskan kveðskap og mikilvægi hans. Margir notuðu einnig tækifærið og glugguðu í þær fjölmörgu ljóðabækur sem finnast í bókasafni setursins, áhugasamir versluðu sér notaðar ljóðabækur sem eru til í hundraðatali á setrinu og skoðuðu allt það sem fyrir augu ber á setrinu.

Um miðjan september var ljóðahátíðin Glóð haldin í fimmta sinn á Siglufirði en það er Ungmennafélagið Glói sem stendur að henni í samstarfi við Félag um Ljóðasetur Íslands. Hátíðin lukkaðist hið besta og voru lesin ljóð fyrir rúmlega 400 manns þessa þrjá daga sem hún stóð. Aðalgestur hátíðarinnar að þessu sinni var Einar Már Guðmundsson en alls voru 11 liðir á dagskránni.

Setrið tók þátt í hátíð sem haldin var í tilefni af 150 ára fæðingarafmæli sr. Bjarna Þorsteinssonar. Á hátíðinni flutti forstöðumaður erindi um hagyrðinginn sr. Bjarna.

Þrír skólahópar hafa komið á setrið í haust og einn skáldahópur var með upplestur fyrir bæjarbúa. Setrið var einnig einn af viðkomustöðum hinnar árlegu Listgöngu sem fer fram á Siglufirði á aðventunni.

Forstöðumaður les fyrir nemendur úr 1.-2. bekk á Siglufirði

Setrinu hafa borist fjölmargar góðar gjafir allt frá opnun, aðallega bókagjafir, og vill forstöðumaður koma á framfæri kærum þökkum fyrir þann hlýhug sem fólk hefur sýnt þessu framtaki. Hefur bókakosturinn vaxið um nokkur hundruð bækur frá því í sumar, munir og ýmis önnur gögn hafa bæst í safnkostinn sem verður sífellt áhugaverðari. Einnig hafa setrinu borist nokkrir fjárstyrkir, sem eru ákaflega vel þegnir þ.s. róðurinn er þungur, og færum við viðkomandi aðilum hjartans þakkir fyrir.

Gestir á þessu fyrsta starfsári voru um 1300 talsins og er það fram úr björtustu vonum. 

24.12.2011  Gleðileg jól kæru ljóðavinir
Við sendum ykkur bestu óskir um gleðileg jól héðan frá Ljóðasetri Íslands og þökkum fyrir gjafir og hlýhug. Annáll ársins birtist hér á síðunni milli jóla og nýárs.

23.12.2011  Ljóðabækurnar streyma til setursins
Hér að neðan segjum við frá góðri gjöf sem setrinu barst frá bókaforlögunum Bjarti og Veröld en þetta eru langt því frá einu gjafirnar sem hafa borist að undanförnu. Heiðurshjónin Bjarni Árnason og Guðbjörg Jóhannsdóttir (Bjarni og Bubba) færðu setrinu í annað sinn glæsilega bókagjöf á dögunum, rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson sendi setrinu 9 ljóðabækur á dögunum, ljóðskáldið Eyjólfur Óskar sendi tvær af sínum bókum, Guðmundur Þorgeirsson (Mummi) kom færandi hendi með fullan poka af bókum og fleiri mætti nefna. Eru öllum þessum aðilum færðar kærar þakkir. Bækurnar verða til sýnis á setrinu næstu daga í sérstakri uppstillingu og síðan fá þær sinn sess í bókasafni setursins.    

23.12.2011  Bjartur og Veröld færa Ljóðasetrinu bækur 
Á dögunum bárust Ljóðasetrinu allar þær ljóðabækur sem forlögin Bjartur og Veröld gefa út á þessu ári. Við vígslu setursins í sumar gáfu sömu forlög setrinu einnig töluvert af ljóðabókum sem þau hafa gefið út undanfarin ár. Er þetta mikill fengur fyrir setrið og færir það þessum forlögum kærar þakkir fyrir góðan hug. 
Þeir höfundar sem eiga ljóðabækur hjá Bjarti og Veröld í ár eru: Matthías Johannessen, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sindri Freysson, Ásdís Óladóttir, Bergsveinn Birgisson, Ingunn Snædal og Kristín Svava Tómasdóttir.
Opið verður á Ljóðasetrinu í dag og eins millli jóla og nýárs og geta gestir þá kynnt sér innihald þessara nýju bóka ásamt því að skoða allt annað markvert sem þar er að sjá.

Nýjustu bækurnar á setrinu
  
16.12.2011  Gestir Listgöngunnar komu við á setrinu
Hin árlega Listganga Ferðafélags Siglufjarðar fór fram þann 14. des sl. Komið var við á átta stöðum og var einn þeirra Ljóðasetrið. Gestir skoðuðu sig um og forstöðumaður sagði frá starfseminni auk þess að lesa hinar nýju jólasveinavísur sínar o.fl. Var mikil ánægja með heimsóknina og glatt á hjalla.
 
Forstöðumaður segir frá starfseminni

15.12.2011  Ungir nemendur í heimsókn
Á dögunum komu siglfirskir nemendur 1. og 2. bekkjar úr Grunnskóla Fjallabyggðar í heimsókn á Ljóðasetrið. Þar las forstöðumaður fyrir þá jólasveinavísur Jóhannesar úr Kötlum ásamt fleiri ljóðum úr bókinni sígildu Jólin koma, við góðar undirtektir. Einnig las forstöðumaður eigin vísur sem settar voru saman um aðra syni Grýlu, og þá aðallega þá sem verið hafa að þvælast á Vestfjörðum undanfarnar aldir. En þessa dagana eru þessar vísur hluti af jólaleikriti sem sýnt er á Ísafirði og heitir Bjálfansbarnið og bræður hans. Höfðu börnin gaman af heimsókninni og hlustuðu af athygli.

Flottur hópur og endurskinsmerkin á sínum stað 

24.11.2011 Styrkur frá KEA
Í gær tók forstöðumaður setursins við styrk frá KEA við hátíðlega athöfn á Akureyri. Styrkurinn var 150.000 kr. og var veittur vegna þeirra lifandi viðburða sem verða á dagskránni á setrinu næsta sumar. Sami háttur verður hafður á og síðasta sumar þ.e. að boðið verður upp á lifandi viðburði alla daga sem opið er. Stefnt er að því að fá þjóðþekkt skáld í heimsókn í hverri viku en hina daga vikunnar munu listamenn bæjarins og fostöðumaður sjá um dagskrá dagsins auk þess sem skáldum og öðrum listamönnum sem leið eiga í bæinn er velkomið að koma fram. Þessi styrkur auðveldar setrinu að fá til sín utanaðkomandi skáld og eru KEA færðar kærar þakkir fyrir velviljann.

 10.11 2011  Enn berast góðar gjafir
Það er ekkert lát á góðum gjöfum til setursins. Á dögunum kom Bjarni Þorgeirsson málarameistari færandi hendi og afhenti setrinu um 100 ára gamla mynd af Hallgrími Péturssyni eftir Samúel Eggertsson. Mynd þessa tók Bjarni til handargagns fyrir 20-30 árum síðan, þegar átti að henda henni, og hefur varðveitt hana síðan. Myndin er vel farin og mun sóma sér vel á setrinu. Myndin sýnir öll útgáfuár Passíusálmanna frá 1666 - 1906, þ.e. fyrstu 43 útgáfur þeirra og er því góð heimild auk þess að vera mikil prýði á setrinu. Auk þess eru enn að berast bókagjafir. Í síðustu viku bárust þrjár slíkar gjafir og von er á að a.m.k. einni í þessari viku. Titlarnir á setrinu nálgast óðfluga 2000.

Bjarni færir Þórarni fostöðumanni myndina góðu (Mynd af sksiglo.is)

27.10.2011  Samkaup styrkja uppbyggingu og rekstur Ljóðaseturs
Á Siglufirði er rekin verslun í Samkaup-Úrval keðjunni. Á dögunum veitti Samkaup Ljóðasetri Íslands 100.000 kr. styrk til reksturs og frekari uppbyggingar Ljóðaseturs Íslands á Siglufirði. Færa forsvarsmenn setursins Samkaupum kærar þakkir fyrir.

17.10.2011  Setrið þátttakandi í afmælishátíð sr. Bjarna Þorsteinssonar
Dagana 14.-16. okt. voru hátíðahöld á Siglufirði í tilefni af 150 ára afmæli sr. Bjarna Þorsteinssonar þjóðlagasafnara, tónskálds og prests Siglfirðinga til 47 ára. Laugardaginn 15. var haldið málþing í Siglufjarðarkirkju þar sem flutt voru stutt erindi um þennan afreksmann auk þess sem lög hans og textar voru sungnir. Forstöðumaður setursins var með erind þar sem hann fjallaði um hagyrðinginn og latínuskáldið sr. Bjarna en hann er talinn síðasta latínuskáldið í prestastétt, sem eitthvað hvað að og eftir hann liggja í handriti fjölmörg ljóð á latínu. Einnig orti hann nokkuð af söngtextum og ljóðum en sá texti hans sem okkur er líklega tamastur á tungu er textinn við rútubílasönginn vinsæla: Það liggur svo makalaust ljómandi á mér... Um 150-200 manns sóttu þessa dagskrá í kirkjunni.

12.10.2011  Enn berast bókagjafir
Það má segja að í hverri viku berist bókagjafir til setursins og koma þær héðan og þaðan af landinu. Á dögunum barst pakki frá kennaranum og ljóðskáldinu Eiríki Brynjólfssyni sem innihélt fjórar af þeim ljóðabókum sem hann hefur sent frá sér. Fyrr í haust barst vegleg gjöf frá systkininum Jóhannesi Þór Guðmundssyni og Kristínu Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Þar var um að ræða um 50 bækur sem þau gáfu setrinu til minningar um afa þeirra, Þórarinn Magnússon skósmið, og pabba Guðmund Þórarinsson, kennara og frjálsíþróttaþjálfara, en bækurnar voru áður í þeirra eign. Birgir Dýrfjörð sendi einnig setrinu á dögunum Fæðingarsaltara Síra Gunnlaugs Snorrasonar sem Birgir hefur umritað á latínuletur, en Gunnlaugur orti hann á 18. öld.

27.09.2011  Gjábakkahópurinn í heimsókn
Hópur ljóðskálda sem kennir sig við Gjábakka í Kópavogi leit í heimsókn á setrið síðasta laugardag og las úr verkum sínum. Þó nokkur fjöldi bæjarbúa mætti á setrið til að hlusta á upplesturinn og skemmti sér vel.  Með hópnum var einnig harmonikuleikari og lék hann á nikkuna fyrir og eftir upplestur. Þarna var 12 manna hópur á ferð og voru meðlimir hans mjög ánægðir með komu sína á setrið. Skáldin höfðu áður sent nokkrar af bókum sínum til setursins til varðveislu þar og bættu fleiri við í þessari heimsókn.
 
23.09.2011  Ljóðahátíðin Glóð fór vel fram
Ljóðahátíðin Glóð fór fram á Siglufirði dagana 15.-17. september og var þetta fimmta árið í röð sem hún var haldin. Það eru Ungmennafélagið Glói og Félag um Ljóðasetur Íslands sem standa að hátíðinni. Dagskráin var í 11 liðum og alls voru lesin ljóð fyrir rúmlega 400 manns þessa þrjá daga. Segir nánar af hátíðinni í fréttaskotunum hér að neðan. Myndir eru af vefnum sksigló.

22.09.2011  Lokakvöld Glóðar
Lokakvöldið var svokallað Kósíkvöld og fór það fram í Ljóðasetrinu. Þar var boðið upp á ljóðalestur af ýmsu tagi, gítarspil og söng auk léttra veitinga. Var þetta ákaflega skemmtileg og ljúf stund sem gestir nutu vel.

Sönghópurinn Gómar tók m.a. lagið og fór með gamanvísur

22.09.2011  Úrslit í ljóðasamkeppni hátíðarinnar
Að venju var haldin ljóðasamkeppni milli nemenda í eldri deild grunnskólans í tengslum við hátíðina. Að þessu sinni tóku nemendur í 8. og 9. bekk þátt í samkeppninni og, líkt og síðustu tvö ár, var ort út frá listaverkum í eigu Fjallabyggðar. Keppnin fór þannig fram að nemendur komu í Ráðhússalinn, þar sem búið var að stilla upp 10 listaverkum, skoðuðu sig um og reyndu svo að yrkja ljóð út frá einhverri mynd eða myndum. Gekk það vel í flestum tilfellum og alls urðu til rúmlega 60 ljóð hjá þessum hópi sem taldi um 60 nemendur.
Á laugardeginum voru úrslit keppninnar kunngjörð og las Einar Már upp vinningsljóðin þrjú. Líkt og svo oft áður voru það stúlkur sem voru höfundar vinningsljóðanna og voru þau sérstaklega góð í ár. Vinningshafarnir voru Sigríður Alma Axelsdóttir, Erla Vilhjálmsdóttir og Rakel Rut Heimisdóttir. Árituðu þær ljóðin sín og færðu Einari að hans ósk.

Þórarinn, Sigríður Alma, Rakel Rut, Erla og Einar Már 

22.09.2011  Einar Már aðalgestur Glóðar
Rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson var aðalgestur Glóðar þetta árið og las hann úr verkum sínum við góðar undirtektir í Kaffi Rauðku um miðjan dag á laugardeginum. Ágætlega var mætt á upplesturinn og skemmti fólk sér vel enda Einar skemmtilegur upplesari. Lagði hann sérstaka áherslu á feril sinn sem ljóðskáld, las úr öllum ljóðabókum sínum og fór yfir ferilinn. Einnig las hann úr nýjustu bókunum sínum Bankastræti Núll og Hvítu bókinni og þær voru einnig til sölu á staðnum og áritaði Einar þær.

Einar Már les úr verkum sínum

21.09.2011  Páll Helgason fór á kostum í Þjóðlagasetrinu
Á föstudagskvöld flutti Páll Helgason limrur sínar af fólkinu á Brekkunni fyrir fullu húsi í Þjóðlagasetrinu. Þessar limrur segja frá eftirminnilegu fólki sem bjó á Brekkunni, sem er svæðið fram af kirkjunni á Siglufirði, þegar Páll var að alast þar upp. Á milli limranna bætti Páll við ýmsum sögum og frekari upplýsingum um þetta fólk. Eins og von var fór Páll á kostum við flutninginn svo að áheyrendur sprungu úr hlátri hvað eftir annað, enda limrurnar fullar af góðlátlegum húmor og Páll frábær flytjandi. Flutningurinn var festur á filmu en framtíðin mun skera úr um hvað gert verður við þá upptöku.

Páll fór á kostum í flutningi sínum

21.09.2011  Laugi póstur í Ljóðasetrinu
Seinni part föstudags hélt dagskráin áfram. Kl. 17.00 sagði forstöðumaður frá nokkrum áhugaverðum munum og bókum á Ljóðasetrinu og kl. 18.00 var svo komið að dagskrá í tali og tónum um Lauga póst, Guðlaug Sigurðsson hagyrðing og hákarlabana úr Fljótum. Þetta var stutt leikgerð sem Þórarinn Hannesson vann upp úr viðtölum sem tekin voru við Lauga á sínum tíma auk þess sem hann notaði kveðskap eftir hann. Leikgerðin varð til í framhaldi af því að afkomendur Lauga færðu Ljóðasetrinu ýmis gögn frá Lauga til varðveislu. Ýmsir aðilar komu fram í þessari sýningu; Daníel Pétur Daníelsson var í hlutverki Lauga og Þórarinn í hlutverki blaðamanns, kvæðamannafélagið Fjallahnjúkar kvað nokkur íslensk þjóðlög við vísur Lauga og að auki lék Sturlaugur Kristjánsson undir á harmoniku er Þórarinn flutti tvö frumsamin lög við ljóð Lauga. Sýningin heppnaðist vel og húsfyllir var í setrinu. Það var sérstaklega gaman að nokkrir afkomendur Lauga voru viðstaddir. 
 
20.09.2011  Þórarinn las í skólanum og á Skálarhlíð
Samkvæmt venju á ljóðahátíðinni Glóð heimsótti skáld skóla staðarins og dvalarheimili aldraðra og las úr verkum sínum. Að þessu sinni var ekki leitað langt yfir skammt og sá Þórarinn um þennan þátt hátíðarinnar. Las hann úr Æskumyndum sínum þar sem yrkisefnin eru uppvaxtarár hans vestur á Bíldudal, leikir og störf baranna þar á þeim tíma. Í tilefni af því að í fyrsta sinn var Dagur íslenskrar náttúru haldinn hátíðlegur þennan dag lagði Þórarinn áherslu á ljóð sem tengdust leikjum og ævintýrum barnanna í náttúrunni. Var þar af nógu að taka enda þorpið allt, fjaran og fjöllin, að sumri sem vetri vettvangur barnanna til leikja. Las hann í yngri deildum skólans í Ólafsfirði og á Siglufirði að morgni og heimsótti svo Skálarhlíð í eftirmiðdaginn. Var honum alls staðar mjög vel tekið og fékk ýmsar áhugaverðar athugasemdir og spurningar.  

20.09.2011  Efnileg ungskáld á Glóð
Ljóðahátíðin Glóð hófst fimmtudaginn 15. sept. á því að fjögur ungmenni úr 6. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar fóru á milli 11 vinnustaða á Siglufirði og lásu ljóð fyrir bæjarbúa við góðar undirtektir. Fólki fannst greinilega gott að fá smá andlega næringu í annríki dagsins og börnin þjálfuðust í að lesa upp.

Guðmundur Árni, Elín Helga, Sigríður Ása og Hjörvar Már stóðu sig vel í lestrinum

Um kvöldið var svo haldið ungskáldakvöld í Gránu þar sem fram komu Gréta Kristín Ómarsdóttir og Vilhjálmur Bergmann Bragason auk þess sem Þórarinn Hannesson las eigin ljóð og flutti frumsamið lag. Var mjög gaman að hlusta á ungskáldin Grétu og Vilhjálm. Þau eru skemmtilega ólík skáld og flytjendur, Vilhjálmur yrkir hefðbundið, minnti mann á sum þjóðskáldin og er mjög líflegur í flutningi en Gréta yrkir óhefðbundið og lítur meira inn á við. Upplestur þeirra var ágætlega sóttur og mjög eftirminnilegur.

Vilhjálmur og Gréta Kristín ásamt Þórarni skipuleggjanda hátíðarinnar
Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 13
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 8695
Samtals gestir: 4049
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 15:19:23

Ljóðasetur Íslands

Nafn:

Opið samkvæmt samkomulagi

Farsími:

865-6543

Heimilisfang:

Túngötu 5 Siglufirði

Um:

Setrið var vígt 8. júlí 2011

Kennitala:

440209-0170

Bankanúmer:

1102-26-1318

Tenglar